Mikilvægi hreyfingar fyrir heilsuna
Grand Hótel, laugardaginn 17. janúar kl. 11.00
Ingibjörg H. Jónsdóttir heldur fyrirlestur um mikilvægi hreyfingar fyrir heilsuna í Gullteigi á Grand Hóteli laugardaginn 17. janúar kl. 11.00. Ingibjörg er prófessor í hreyfingu og heilsu við Gautaborgarháskóla og forstöðumaður Streiturannsóknarstofnunar Gautaborgar.
Að loknum fyrirlestrinum mun Auður Ólafsdóttir sjúkraþjálfari fjalla um virkni hreyfiseðla á Íslandi.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og ókeypis en fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því er nauðsynlegt að skrá þátttöku á síðu www.parkinson.is eða í síma 552-4440.
Skráningu lýkur fimmtudaginn 15. janúar.
Léttar veitingar í boði Parkinsonsamtakanna