Markmið

Markmið Nýrnafélagsins er að styðja alla þá sem veikjast af langvinnum nýrnasjúkdómum og aðstandendur þeirra.

  1. Að gæta hagsmuna nýrnasjúkra.
  2. Að fræða almenning og sjúklinga um nýrnasjúkdóma, meðferð þeirra og félagsleg vandamál, sem þeim fylgja.
  3. Að efna til fræðslufunda, skemmtifunda, skemmtiferða og annara félagsstarfa.
  4. Að safna fé til styrktar fræðslustarfi og bættri þjónustu við nýrnasjúka.
  5. Að halda sambandi við systurfélög á norðurlöndum og víða erlendis.
Helstu tekjulindir félagsins eru:
Rekstur félagsins:
Félagsgjöld.
Framlög frá ýmsum.

Minningarsjóðurog styrktarsjóður Félags Nýrnasjúkra:
Minningakort
Heillaskeyti
Framlög og gjafir

Markmið stjórnar starfsárið 2022 til 2023

  1. Fjölga félögum og ná meiri virkni þeirra í Nýrnafélaginu
  2. Efla forvarnir gegn nýrnasjúkdómum og nýrnabilun
  3. Auka jafningjastuðning og hagsmunagæslu fyrir félagsmenn Nýrnafélagsins

Markmið stjórnar starfsárið 2021 til 2022

  1. Fjölga og virkja félaga.
  2. Efla forvarnir gegn nýrnasjúkdómum og nýrnabilun.
  3. Auka fræðslu og samskipti við Landspítala
  4. Stofna hóp foreldra nýrnasjúkra barna og styðja hann.