Gönguhópur 27.ágúst “Við göngum hægt!”
Gönguhópur! Á morgun fimmtudaginn 27. ágúst fer af stað fyrsta ferð gönguhópsins “við göngum hægt”. Lagt verður af stað frá Árbæjarkirkju kl.16:45 gengið verður niður að stíflu, eða aðra hóflega lengd. Einar Björnsson hjúkrunarfræðingur stýrir göngunni og gengur með þeim sem fara hægast. Markmið Einars er að hjálpa þeim af stað í gönguferðir sem eru hægfara og hafa lítið gengið til þessa. Allir velkomnir.