Fréttabréf Nýrnafélagsins í apríl 2026









Aðalfundur félagsins verður þann 14. apríl







Nýrað

Fréttabréf
Nýrnafélagsins í apríl 2026

 

Kæru félagar.

Nú hefur nýr liður bæst við í fréttabréfið og þar mun verða sagt frá því helsta sem stjórnin er að vinna að hverju sinni.
Einnig væri gaman að fá ábendingar frá ykkur um þau málefni sem þið vilduð að stjórnin ynni að.

Gönguhópurinn er farinn að pússa gönguskóna og vonar að þið komið með þeim í göngur í vor.

Gleðilegt sumar kæru félagar og mætum sem flest á aðalfund félagsins.

Bestu kveðjur.
Guðrún Barbara Tryggvadóttir
framkvæmdastjóri  Nýrnafélagsins

 

Fréttir úr starfinu

Stjórn og framkvæmdastjóri Nýrnafélagsins fóru á fund heilbrigðisráðherra í síðasta mánuði. Málefnin sem voru rædd voru forvarnir áður en til nýrnabilunar kemur en þar bar hæst ómeðhöndlaður háþrýstingur sem er helsta orsök nýrnabilunar á Íslandai. Einnig var stuðningur við nýragjafa ræddur en mikið vantar á að sá stuðningur sé viðunnandi. Helst eru það fleiri veikindadagar sem þyrftu að koma til án þess að viðkomandi einstaklingur þyrfti að nota sína veikindadaga. 

Félagið hefur líka fundað með Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítala um málefni nýrnasjúkra. Endurhæfing nýraþega og nýrnasúkra er í skoðun hjá spítalanum. Nýrnafélagið ætlar að fylgja þessu eftir þar sem þetta er eitt af markmðum núverandi stjórnar og mjög mikilvægt.
Einnig kom í ljós í viðtalinu við Runólf að ef að vöntun er á skilun í sveitarfélagi og sveitastjórn er hlynnt því að fá þessa þjónustu, þá ætti það að vera hægt.  Einnig þarf aðstaða að vera  fyrir hendi ásamt starfsfólki sem er tilbúða til að taka þetta að sér og fara í þá þjálfun sem þarf. þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að skilun fengist í viðkomandi byggðarlag.
Gunnhildur fjölskylduráðgjafi vinnur að þessu á þeim stöðum þar sem mikii vöntun er og fólk þarf að fara langar vegalengdir í skilun. Einnig er algengt að fólk komist ekki vegna ófærðar eins og frá Egilsstöðum til Neskaupsstaðar.

Alþjóðlegi nýrnadagurinn var haldinn hátíðlegur þann 12. mars síðastliðinn með erindum frá skilunardeild Landspítala og tókst hann sérlega vel. Efnið var 
heilbrigðar venjur heilbrigð nýru.
Nú stendur aðalfundur Nýrnafélagsin fyrir dyrum og geta allir fylgst með sem vilja á Teams, ef að þeir geta ekki mætt á fundinn sjálfan. Hlekkur er á Facebook.
Áfram veginn,
fyrir hönd stjórnar Nýrnafélagsins,
Guðrún Barbara Tryggvadóttir.

Alþjóðlegi nýrnadagurnn var þann 12. mars síðastliðinn. í tilefni af honum var birtur eftirfarnadi pistill í Morgunblaðinu: 

Þann 12. apríl er alþjóðlegi nýrnadagurinn þar sem nýrnafélög um víða veröld kynna málefni nýrnasjúkra. Málefnið  sem valið hefur verið í ár  eru forvarnir.

Nýrnafélagið á Íslandi heldur úti forvörnum fyrir sitt fólk í sínum daglega rekstri með því að leggja áherslu á næringu og hreyfingu sem eru grunnforvarnir.

Félagið heldur úti gönguhóp og er með næringarráðgjafa á sínum snærum.  Einnig er félagið ný búið að gefa út matreiðslubókina: Borðaðu hollt sem er ekki bara fyrir nýrnasjúka heldur líka þá sem vilja hollt mataræði.

En stundum koma upp lífsstílssjúkdómar svokallaðir þrátt fyrir að fólk lifi heilbrigðu lífi.

Hár blóðþrýstingur er einn af þessum sjúkdómum sem getur skemmt verulega út frá sér, sé hann látinn vera ómeðhöndlaður.

Hann er helsta orsök lokastigs nýrnabilunar á Íslandi. Á Norðurlöndunum er sykursýki megin orsök en hún er í fjórða sæti hér. (Miðað við tölur frá 2020).

Sú staðreynd að það sé hægt að fækka þeim sem fá lokastigs nýrnabilun á Íslandi með reglubundnu blóðþrýstings eftirliti er gott að vita en samt svo sorglegt.  Þetta hefur verið vitað í  mörg ár og svo margir hefðu getað sloppið við að missa nýrun , bara ef að tekið hefði verið á þessu.

Nýrnafélagið hefur reynt að vekja athygli á þessu í langan tíma en við litlar undirtektir hvorki frá almenningi né heilbrigðisþjónustunni.

Í tilefni dagsins skorar Nýrnafélagið á  alla sem tengdir eru heilbrigðisþjónustu á Íslandi að leggjast á eitt og snúa þessari þróun við. Það er ekki bara það að auka lífsgæði almennings með því að sleppa við að fá lífsógnandi sjúkdóm heldur er þetta líka þjóðfélagslega hagkvæmt.

Nýrnafélagið hvetur líka almenning og þar á meðal ungt fólk að taka málin í sínar hendur og biðja um blóðþrýstingsmælingu í læknaheimsóknum. Einnig er hægt að fara í apótek og láta mæla blóðþrýstinginn og líka er hægt að kaupa blóðþrýstingsmæli og mæla sjálfur. Þetta er svo auðvelt en getur skipt sköpum.

Snúum vörn í sókn og fækkum tilfellum af lokastigs nýrnabilun af völdum of hás ómeðhöndlaðs blóðþrýstings.

 Guðrún Barbara Tryggvadóttir,

framkvæmdastjóri Nýrnafélagsins.

 

Á döfinni hjá Nýrnafélaginu:

 Aðalfundur Nýrnafélagsins verður þann 14. apríl, kl. 18:00 í Sigtúni 42.

Grillhátíð í Húsdýragarðinum verður  í maí fyrir alla fjölskylduna.

Í júní leggjum við áherslu á sólarvörn en einnig hefur komið upp sú hugmynd að fá erindi frá skilunardeildinni þar sem sagt verður frá ferlinu að fara í frí til útlanda og nýta sér blóðskilun í viðkomandi landi.

Ágúst er helgaður Maraþoninu og vonum við að sem flestir séu farnir að undirbúa sig til að taka þátt eða að hvetja vini og ættingja til að gera það og safna fyrr Nýrnafélagið.
 

www.facebook.com/nyrnafelagid/

www.nyra.is

Útgefandi: Nýrnafélagið, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Ritstjóri: Guðrún Barbara Tryggvadóttir
Ábyrgðarmaður: Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir
Sími: 5619244

nyra@nyra.is

Opnunartími:
Þriðjudagur og fimmtudagur kl.13:00-16:00
Svarað er í síma félagsins alla daga

Allur réttur áskilin © 2026 Nýrnafélagið, 
Þú færð þennan netpóst af því þú ert félagi í Nýrnafélaginu.

Nýrnafélagið

Sigtún 42

Reykjavík 105

Iceland

Add us to your address book

Þú getur skráð þig af póstlistanum hér.

Email Marketing Powered by Mailchimp