Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2025 til 2026, flutt á aðalfundi þann 14. apríl 2026.Skýrsla stjórnar fjallar um starfsemi félagsins frá aðalfundi til aðalfundar. Að þessu sinni frá 8. apríl 2025 til dagsins í dag. Stjórn fyrir starfsárið 2025 til 2026 var þannig kosin og var síðan sett í embætti að formanni undanskildum á fyrsta stjórnarfundi. Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir formaður, Gísli Steinn Pétursson varaformaður, Helga Guðrún Loftsdóttir ritari, Sigríður Ragna Jónasdóttir gjaldkeri, Svanhvít Sigurðardóttir meðstjórnandi og varamenn þau Guðlaug Halldórsdóttir og Arnar Már Frímannsson.
Stjórnarfundir voru haldnir átta sinnum á starfsárinu.
Markmið stjórnar fyrir þetta starfsár var : Að Nýrnafélagið beiti sér fyrir því að nýrnasjúkum og nýraþegum standi til boða að fá endurhæfingu.Fundur var haldinn með Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítala og nýrnalækni.
Svar við fyrirspurn vegna þessa máls frá Runólfi var að endurhæfing á landsvísu væri í skoðun og hann hefði komið nýrnasjúkum á framfæri þar. „Það mun örugglega taka einhvern tíma en ég mun halda þjónustu fyrir nýrnasjúka á lofti“, sagði Runólfur. - Auka fræðslu fyrir þá sem eru komnir á lista fyrir nýraígræðslu.
Viðtal við þrjá einstaklinga sem allir hafa fengið nýra í Svíþjóð. Bæklingur um þetta efni mun byggjast á þessum viðtölum. Hildigunnur Friðjónsdóttir nýrna -hjúkrunarfræðingur hefur tekið að sér að stýra og hafa hönd í bagga með faglegt efni í bæklingnum. - Auka aðgengi skilunarsjúklinga að meðferð í heimabyggð.
Fundur var einnig haldinn með Runólfi um þetta málefni og telur hann þetta vel athugandi ef að sjúkrastofnun í heimabyggð vill og getur tekið þetta að sér. En skilyrði fyrir þessu er að sveitafélagið hafi samband af fyrra bragði við Landspítala.
Gunnhildur Axelsdóttir fjölskyldufræðingur hefur verið að vinna að þessu fyrir Egilsstaði en þar er vöntun á blóðskilun. Fréttabréf hefur verið gefið út rafrænt fjórum sinnum á þessu starfsári en fundarboð eru líka send út rafrænt ásamt auglýsingum á FB og heimasíðu.
Fréttabréfin eru vistuð á heimasíðu félagsins.
Matreiðslubókin sem kom út á seinasta ári hefur selst vel og almenn ánægja ríkir með hana Fundir og viðburðir
Nýrnafélagið var með nýung í maí en það hélt grillhátíð í Húsdýragarðinum ásamt Félagi sykursjúkra og fengu allir ókeypis inn, bæði félagar og venslamenn.
Nýrnafélagið er eitt af góðgerðafélögunum sem hægt er að styrkja í Reykjavíkurmaraþoninu sem alltaf er haldið í ágúst. Félagið vonar að sem flestir hlaupi fyrir það. Hlauparar fá gefins hlaupaboli frá Nýrnafélaginu og einnig leigði félagið kynningarbás í Laugardalshöll þar sem allir hlauparar komu til að ná í sín hlaupagögn og til að heilsa upp á þau góðgerðafélög sem þeir styrkja.
Á sjálfan hlaupadaginn var góður hópur stuðningsaðila frá Nýrnafélaginu sem létu óspart í sér heyra til að hvetja sitt fólk.
Gaman væri að fleiri félagar sæju sér fært að koma til að hvetja á sjálfan hlaupadaginn.
Maraþonið er mikilvægt fyrir Nýrnafélagið bæði fjárhagslega og svo stuðlar það líka að heilsusamlegri hreyfingu. Fundur þar sem nýir félaga hittust og fræddust um hvað Nýrnafélagið getur gert fyrir þá, var haldinn í september en ekki var hann fjölsóttur sem er miður þar sem að allir hafa gott af að kynnast hvað félagið stendur fyrir.
Framkvæmdastjóri fór á deild 12G sem tekur við nýrnasjúklingum og kynnti félagið fyrir starfsfólkinu. Fræðslufundur var haldinn í október og var hann vel sóttur en efnið var næring fyrir nýrnasjúka í umsjón Berthu Ársælsdóttur næringarfræðings sem jafnframt er næringarfræðingur Nýrnafélagsins. Nýja matreiðslubókin var kynnt og Sepideh blóðskilunarsjúklingur og félagi í Nýrnafélaginu sýndi myndband frá sjónarhorni blóðskilunarsjúklings. Jólafundur var haldinn í desember með glensi, gamni og hinu árlega spilabingói þar sem glæsilegir vinningar voru í boði. Eiríkur Jónsson, þvagfæraskurðlæknir kom og las upp úr bók sinni Andrými. Hlauparar voru heiðraðir með rós og börnin sem hlupu fengu gjafir við þeirra hæfi. Einnig voru tónlistaratriði og fjöldasöngur. Mars er mánuður Alþjóðlega nýrnadagsins og var hann þann 12. mars síðastliðinn. Nýrnafélagið hélt upp á hann með að halda sameiginlegan fræðslufund með Fagdeild nýrnahjúkrunarfræðinga.
Þær Sigríður Einarsdóttir og Selma Maríusdóttir héldu erindi.
Fundurinn tókst vel og var vel mætt á hann. Gunnhildur Axelsdóttir fjölskyldufræðingur starfar fyrir félagið og geta félagsmenn leitað til hennar til að fá ráðgjöf og stuðning eða ef að þá vantar aðstoð í réttindamálum. Bertha María Ársælsdóttir næringarfræðingur vinnur líka fyrir félagið og er hún með viðtöl á skrifstofu Nýrnafélagsins. Þessi þjónusta er gjaldfrjáls fyrir félagsmenn. Nýrnafélagið er aðili að norrænum samtökum félaga nýrnasjúkra á Norðurlöndunum, nefnt NNS. Fundur samtakanna var núna haldinn í Osló og mættu tveir félagar á þann fund. Einnig hafa verið netfundir. Einnig sótti Nýrnafélagið um aðild að EKPF sem eru samtök nýrnafélaga í Evrópu. Fyrsti fundurinn sem Nýrnafélagið sendi fulltrúa á var haldinn 4. til 5. nóvember í Mílanó. Alltaf er gott að hitta erlenda aðila til að fræðast og bera sig saman við og heyra hvað verið er að gera í löndunum í kringum okkur. Félagið sendi glaðning á blóðskilunardeildir út um allt land bæði fyrir jól og páska. Baráttumál félagsins: Vitundarvakning um háan blóðþrýstinga og hættuna á nýrnabilun Í dag er hár, ómeðhöndlaður blóðþrýstingur ENN ÞÁ helsta orsök nýrnabilunar á Íslandi. Þessu er auðvelt að breyta með samstilltu átaki landlæknis, lækna, heilsugæslunnar og annarra sem þetta málefni varðar. Einnig verður almenningur að taka ábyrgð og fylgjast með blóðþrýsting vegna þeirra alvarlegu sjúkdóma sem honum getur fylgt ef hann er ekki meðhöndlaður í tíma. Blóðskilunarsjúklingar fái aksturskostnað greiddan. Félagið hefur með aðstoð Gunnhildar fjölskyldufræðings komið þessu máli í viðunandi horf. Nú er vegalengdin sem Sjúkratryggingar greiða orðin100 km aðra leiðina Fleiri skilunardeildir verði settar út á land.Þetta mál er í athugun og stefnt er að því að Egilsstaðir fái næstu skilun. Fjármál: Árið 2025 var gott fjármálalega séð fyrir Nýrnafélagið. Það skilaði hagnaði en það var vegna þess að félagið fór tvisvar sinnum í símasafnanir á árinu.
Erfitt er að gera fjárhagsáætlun þar sem helstu styrkir félagsins frá bæði ÖBÍ og Heilbrigðisráðuneytinu eru ekki fyrirsjáanlegir. Erfiðlega gengur að innheimta félagsgjöld, en félagið tekur alltaf tillit til þeirra sem ekki geta greitt og það eru margir í félaginu. Nýrnafélagið rekur netverslun á heimasíðunni sinni og þar er hægt að kaupa matreiðslubókina og ýmislegt annað.
Einnig eru seldar þar myndir eftir Ragnar Kristjánsson, en hann gefur allan ágóða af myndunum beint til Nýrnafélagsins. Skrifstofa Nýrnafélagsins var opin á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 13.00 til 16.00 á þessu starfsári.
Sími skrifstofunnar hefur verið framsendur í síma framkvæmdarstjóra utan skrifstofutíma þannig að alltaf er svarað í síma félagsins. Stjórn Nýrnafélagsins þakkar öllum félögum gott samstarf og einnig öllum sem hafa liðsinnt félaginu á liðnu starfsári. Helga Hallgrímsdóttir
formaður Nýrnafélagsins starfsárið 2025-2026 |