Fréttabréf Nýrnafélagsins í nóvember 2025

<!doctype html>


 

 

Nýrað

Fréttabréf
Nýrnafélagsins í nóvember 2025

 

Kæru félagar.
Nú líður að jólum og allir keppast við að undirbúa þau, en munum förum hægt um gleðinnar dyr.  Þá á ég við að við tökum þessu með ró og höldum í gleðina okkar og höfnum stressi á okkar bæ. Annað sem félagar Nýrnafélagsins verða að taka með í reikninginn er jólamaturinn. Þessi hefðbundni jólamatur er ekki alveg í takt við það sem okkar félögum er ráðlagt að borða. Þess vegna birtum við aftur pistilinn hennar Berthu frá síðustu jólum, þar sem hún ráðleggur fólki hvernig best sé að haga mataræðinu um jólin.
Undirbúningur stendur sem hæst fyrir jólafundinn sem haldinn verður 9. desember og vonumst við eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Bestu kveðjur.
Guðrún Barbara Tryggvadóttir
framkvæmdastjóri  Nýrnafélagsins

Hátíðarmaturinn

Höf.: Bertha María Ársælsdóttir matvæla- og næringarfræðingur M.Sc.

Í aðdraganda jóla er tilvalið að rifja upp grunnfræðslu varðandi mataræði og skerta nýrnastarfsemi.
Á vef Nýrnafélagsins má annars vegar finna bláa heftið um að Hægja á nýrnabilun þar sem farið er í helstu atriði sem huga þarf að þegar dregur úr nýrnastarfseminni. Hins vegar er þar að finna góð myndbönd úr Nýrnaskólanum þar sem næringarfræðingur fer yfir helstu atriði, næringarefnin og mataræði.
Að því loknu þarf að taka með í reikninginn á hvaða stigi sjúkdómurinn er um þessar mundir samkvæmt síðustu skoðun nýrnalæknisins og þá má taka ákvörðun um hvers konar jólamatur skuli vera á boðstólum.
Íslenskar jólahefðir eru ennþá mjög íhaldssamar og byggja að mestu leyti á söltum og reyktum mat. Það kemur til af því að það var hin hefðbundna verkunaraðferð fyrir tíma kæli- og frystiskápa og hefur fylgt okkur sem hátíðarmatur fram á þennan dag. Hins vegar hefur fæðuframboð tekið miklum breytingum frá því að söltun og reyking voru helstu framleiðsluaðferðir. Í dag eru matvöruverslanir stútfullar af ýmiss konar ferskmeti svo sem ávöxtum, grænmeti, kjöti og fiski svo fátt eitt sé nefnt.
Mælt er með því að fæðuvalið byggi fyrst og fremst á ferskum matvörum úr öllum fæðuflokkum. Flestir ættu að geta fundið ferskt kjöt og fiskmeti sem kitlar getur bragðlaukana eftir góða kryddun og eldun. Einnig væri mjög æskilegt að auka hlut grænmetis og ávaxta í flestum máltíðum.
Ef löngun er í hangikjötið og hamborgarhrygginn um jólin er skynsamlegt að velja saltminnstu tegundirnar en það er töluverður munur á saltnotkun milli framleiðenda. Það má lesa saltinnihald á næringargildismerkingum þar sem fram kemur hversu mikið salt má finna í 100 g af vörunni.
Samkvæmt síðustu athugun var saltinnihald í hamborgarhryggjum sem í boði voru á höfuðborgarsvæðinu allt frá 1,1 g upp í 2,6 g í 100 g. Það er töluverður munur og þessi munur margfaldast eftir því sem skammtastærðin stækkar.
Sama er að segja um hangikjötið en í fyrrgreindri athugun var saltinnihald frá 0,7 g upp í 3,2 g sem er ennþá meiri munur en í hamborgarhryggjunum. Það getur því skipt mjög miklu máli að velja saltminni tegundir og gæta að því hversu stór skammtur er settur á diskinn.
Annað mikilvægt atriði er að borða einungis eina máltíð með svo saltríku innihaldi en sleppa því að borða afganga næstu daga á eftir – og sérstaklega þegar maður hefur valið að borða aðra tegund af saltríku kjöti eða fiski í aðalmáltíð dagsins!
Aðrar saltríkar fæðutegundir sem algengar eru á hátíðarborðinu eru meðal annars reyktur lax og síld en báðar þessar tegundir eru yfirleitt mjög saltríkar. Marineraða síld má skola eða útvatna til að minnka saltinnihald en mikilvægt að gæta þess að borða ekki svo saltríkar fæðutegundir í sömu máltíð og hangikjöt eða annað saltað og reykt kjöt. Benda má á ferskmeti eins og ferskan fisk t.d. rækjur og grænmeti og ávexti í meðlæti.
Að lokum skal nefna að fjölbreytni og ferskleiki eru lykilatriði í fæðuvali um hátíðarnar.
Gleðilega hátíð og njótið vel.

Fréttir úr starfinu

Það helsta sem á dagana hefur drifið hjá okkur í Nýrnafélaginu er útgáfa matreiðslubókar fyrir þá sem eru með skerta nýrnastarfsemi. Þar var gamall draumur að rætast því að allt of margir eru í vandræðum með hvað má borða, þegar ýmsir fæðuflokkar eru dottnir út svo að við vonum að bókin hjálpi til.
Nýrnafélagið er í samvinnu við evrópsku EKPF og norrænu nýrnasamtökin NNS og eru stórir fundr hjá báðum samtökunum einu sinni á ári,
Aðilar úr stjórn félagsins fóru á báða fundina og komu fullir eldmóðs til baka því að það er alltaf gefandi fyrir svona starf að hitta kollega og heyra hvað þeir eru að gera. Nýrnafélagið fékk klapp á bakið og hrós fyrir hvað svona lítið félag hefði áorkað.
Það er t.d. stuðningur sem félagið veitir bæði andlegur og aðstoð með réttindamál ásamt því að allir komast alltaf að hjá næringarfræðingi félagsins þegar þeir þurfa þess.
Stjórn Nýrnafélagsins hélt fund með Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítala sem  jafnframt er styrkur stuðningsmaður félagsins. Það er alltaf gott að tala saman og fá skarpari sýn á stefnu spítalans svo að félagið geti einbeitt sér að réttum málum í sinni baráttu.
Fundur með heilbrigðisráðherra stendur fyrir dyrum og þar verður aðal umfjöllunarefnið af hverju blóðþrýstingur er ekki mældur í öllum læknisheimsóknum til að minnka þann faraldur sem er á Íslandi í nýgengni lokastigs nýrnabilunar af völdum of hás blóðþrýstings.
Nýrnafélagið er líka orðið aðili að MedicAlert á Íslandi. Til að útskýra fyrir þeim sem ekki vita hvað það er, fygir grein með þar sem sagt er frá þeirra stórmerkilega starfi. Það eiga allir nýraþegar að bera armband frá þeim.
Merki frá MedicAlert getur bjargað mannslífi.

Grein frá MedicAlert á Íslandi

Nýrnafélagið er nýjasta aðildarfélag MedicAlert á Íslandi

Það er sönn ánægja að vera komin í samstarf við Nýrnafélagið og við viljum að sem allra flest geti notað sér þjónustuna sem við hjá MedicAlert veitum.

Margir í Nýrnafélaginu þekkja nú þegar MedicAlert merkin og eru notendur.
En fyrir þau sem ekki vita þá er um að ræða persónugert öryggismerki sem notendur bera sem armband eða hálsmen.
Hver og einn merkisberi er með merki sem aðeins tilheyrir honum. Númer merkisberans er grafið á plötuna og þar er einnig að finna 800 númer sem hægt er að hringja í allan sólarhringinn alla daga ársins. Þegar hringja þarf í 800 númerið  er númer merkisberans gefið upp. Upplýsingum viðkomandi, sem eru vistaðar hjá Landspítalanum, er þá flett upp.

MedicAlert hefur verið starfandi á íslandi í 40 ár eða frá árinu 1985 og merkisberum fjölgar jafnt og þétt. Í mars á þessu ári var fjárfest í nýrri leiservél frá Gravotech í Danmörku. Við fengum kennslu á tækið sem notað er til að grafa upplýsingarnar á merkin. Þegar merki hefur verið pantað og greitt fer það í vinnslu. Skráning upplýsinga fer fram á skrifstofu MedicAlert. Læknir kemur einu sinni í viku til að lesa yfir allar nýjar umsóknir til að ganga úr skugga um að skráningar séu eins og best verður á kosið. Þá er grafið á merkin og prentuð veskisspjöld og bréf sem afhent eru með merkjunum.

Merkin eru fjölbreytt og úrvalið er hægt að skoða á heimasíðunni okkar www.medicalert.is eða koma í heimsókn til okkar í Hlíðarsmára 14 í Kópavogi. Þá er hægt að máta og fá persónulega aðstoð. Fylla þarf út umsókn og eftir að búið er að greiða fyrir merkið þá líða aðeins nokkrir dagar þar til merkið, og kort sem hægt er að hafa í veski, eru tilbúin.

HVER ERUM VIÐ?
MedicAlert eru alþjóðleg öryggissamtök sem veita upplýsingar um merkisbera á neyðar stundu.
Á Íslandi eru yfir 6.000 merkisberar.
Hringja má í símanúmer vaktstöðvar á Íslandi alstaðar að úr heiminum.
Samtökin eru sjálfseignarstofnun sem starfar óhagnaðardrifið undir vernd Lions hreyfingarinnar á Íslandi.
Milljónir MedicAlert merkisbera eru í yfir 40 löndum.

Á döfinni hjá Nýrnafélaginu:

9. desember verður jólafundur Nýrnafélagsins haldinn í Mannréttindahúsinu.

Áætlað er að vera með félagsfund í febrúar og mun talskona sjúklinga vera með erindi.

Í mars fáum við tannlækni til að koma og tala um tannheilsu og nýrnasjúklinga. Fundirnir verða auglýstir betur síðar.

www.facebook.com/nyrnafelagid/

www.nyra.is

Útgefandi: Nýrnafélagið, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Ritstjóri: Guðrún Barbara Tryggvadóttir
Ábyrgðarmaður: Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir
Sími: 5619244

nyra@nyra.is

Opnunartími:
Þriðjudagur og fimmtudagur kl.13:00-16:00
Svarað er í síma félagsins alla daga

Allur réttur áskilin © 2026 Nýrnafélagið, 
Þú færð þennan netpóst af því þú ert félagi í Nýrnafélaginu.

Nýrnafélagið

Sigtún 42

Reykjavík 105

Iceland

Add us to your address book

Þú getur skráð þig af póstlistanum hér.

Email Marketing Powered by Mailchimp