Fréttabréf Nýrnafélagsins í ágúst 2025

<!doctype html>


 

 

Nýrað

Fréttabréf Nýrnafélagsins í ágúst 2025

 

Kæru félagar.
Nú er ágúst mánuður að renna sitt skeið á enda. En áður en að það gerist verður Reykjavíkur maraþonið haldið næstkomandi laugardag þann 23. ágúst.
Mikil eftirvænting er alltaf hjá góðgerðafélögunum þennan mánuð. Allir smitast af kraftinum sem liggur í loftinu, gleðinni og fórnfýsinni sem svo fjölmargir færa með því að hlaupa fyrir þá sem ekki geta hlaupið.Við hjá Nýrnafélaginu erum alltaf svo full af þakklæti að sjá alla þá sem leggja félaginu lið með því að hlaupa fyrir það og safna í leiðinni peningum sem Nýrnafélagið hefur svo sannarlega þörf fyrir.

Við segjum bara takk, takk, takk og lofum að leggja enn meira á okkur fyrir alla þá sem eru með skerrta nýrnastarfsemi og þurfa á okkar þjónustu að halda.

Kæru hlauparar, gangi ykkur allt að sólu á laugardaginn og alla aðra daga og komið heil heim, það er það sem mestu máli skiptir.

Guðrún Barbara Tryggvadóttir
ritstjóri fréttabréfs Nýrnafélagsins

Formáli íslenskrar Þýðingar.

Matur er mannsins megin og ein besta leiðin til að hægja á framgangi nýrnasjúkdóms er hollt og fjölbreytt matarræði. Þegar einstaklingur greinist með nýrnasjúkdóm felst eftirlit lækna m.a. í því að  fylgjast með uppsöfnun úrgangsefna í blóðinu vegna slakrar starfsemi nýrnanna. Ef þörf krefur má breyta mataræði í takt við niðurstöður blóðmælinga. Þau efni sem algengast er að einstaklingar með skerta nýrnastarfsemi þurfa að fylgjast með í fæðunni eru salt, prótein, fosfór og kalíum.
Nýrnafélagið hefur lengi beitt sér fyrir því að auðvelda aðgengi einstaklinga með skerta nýrnastarfsemi að upplýsingum og fræðslu sem geta nýst þeim til þess að bæta mataræðið.
Þessi matreiðslubók er liður í þeirri baráttu Nýrnafélagsins. Félagið fékk góðfúslegt leyfi dönsku nýrnasamtakanna til að þýða bókina á íslensku og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Bókin inniheldur uppskriftir sem miða að því að lágmarka heilt yfir þau efni sem einstaklingar með skerta nýrnastarfsemi þurfa að forðast en að auki er í henni góður fræðslukafli um næringarefnin við mismunandi aðstæður. Við hverja uppskrift má svo finna næringargildi sem nýtist til þess að reikna saman magn þeirra efna sem skipta máli í mataræðinu.
Það er von Nýrnafélagsins að þessi matreiðslubók komi að góðum notum fyrir einstaklinga sem glíma við nýrnabilun og ferðalagi þeirra að góðri heilsu.

Helga Hallgrímsdóttir
Formaður Nýrnafélagsins

Hægjum á þróun nýrnabilunar með réttu matarræði

Ein besta leiðin til að hægja á framgangi nýrnasjúkdóms er heilbrigt matarræði.
Í líkamanum er til staðar ferli sem sér um að losa viðbótarvökva úr blóðinu. Til að þetta ferli gangi upp þarf að vera til staðar rétt jafnvægi af salti (sodium) og kalíum til að draga vökvann úr blóðinu og inn í nýrun. Ef of mikið salt er til staðar í blóðinu raskast þetta ferli sem getur leitt til þess að virkni nýrnanna minnkar. Líkaminn nær þá ekki að losa nægan vökva og vökvasöfnunin leiðir til of hás blóðþrýstings sem er einn helsti áhættuþáttur í nýrna- hjarta- og æðasjúkdómum. Afleiðing af vökvasöfnun getur einnig verið bjúgur, mæði og jafnvel vökvasöfnun í kringum hjarta og lungu. Þekkt er að mikil saltneysla getur aukið hrörnun nýrnanna og því er mikilvægt fyrir einstaklinga sem eru með nýrnabilun að takmarka inntöku á salti eins og mögulegt er.

Ráðlagður dagsskammtur fyrir heilbrigða einstaklinga
Landlæknir bendir á að þörf einstaklinga fyrir salt sé ekki nema 1.5 gr á dag en ráðlagður hámarksskammtur fyrir karla eru 7 gr á dag og 6 gr á dag fyrir konur. Rannsóknir Landlæknis sýna einnig að aðeins um 13% karla og 36% kvenna neyta salts undir hámarksskammti á dag.

Hvar fáum við helst salt úr fæðunni?
Samkvæmt Landlækni kemur um 75% af salti úr tilbúnum matvælum og þá helst úr unnum kjötvörum, brauðum, ostum og sósum eða súpum. Til að minnka saltneyslu er því mikilvægt að borða eins hreina og lítið unna matvöru og mögulegt er.

Að draga úr saltneyslu
Til að draga úr saltneyslu er nauðsynlegt að huga vel að matarræði og læra að lesa á umbúðir. Samkvæmt Landlækni telst vara saltrík ef það eru meira en 1.25 gr. (1.250 mg) af salti í 100 grömmum af vörunni. Ágætis regla er að miða við að ef salt er eitt af fyrstu 5 innihaldsefnum sem talin eru upp á vörunni þá er varan sennilega of saltrík.

•    Draga verulega úr notkun salts í eldamennsku og borðhaldi
•    Forðast kryddblöndur en nota í staðin kryddjurtir (ferskar eða þurrkaðar) eða saltlaus krydd
•    Sojasósur, Teryaki sósur og aðrar asískar sóur eru afar saltríkar
•    Forðast unnar kjötvörur, álegg, reykt kjöt og unnin mat eins og hægt er

Samkvæmt davita.com má nota neðangreind viðmið til að lesa á umbúðir á unninni matvöru (hafið í huga að vara telst saltrík ef það eru meira en 1.250 mg af salti í 100 grömmum):
•    Sodium Free – Örlítið magn af salti í hverjum skammti
•    Very Low Sodium – 35 mg eða minna í hverjum skammti
•    Low Sodium – 140 mg eða minna í hverjum skammti
•    Reduced Sodium –  Saltmagn er minnkað um 25%
•    Light or Lite in Sodium – Saltmagn er minnkað um a.m.k 50%
Á umbúðum matvæla er oft gefið upp magn natríums en ekki salts. Til að umreikna natríum yfir í salt er natríum margfaldað með 2,5.

Einstaklingar sem hafa fengið ígrætt nýra þurfa einnig að huga vel að saltneyslu sinni til að skaða ekki nýrað og því eiga þessar leiðbeiningar einnig við um þá.

Það er mikilvægt að einstaklingar með nýrnabilun fái ráðgjöf hjá næringarfræðingum um það matarræði sem hentar miðað við aðstæður hvers og eins. Þá er einnig gott að geta lesið utan á matvæli og séð innihaldið í þeim vörum sem keyptar eru inn á heimilið.

Á döfinni hjá Nýrnafélaginu:

Í september verður haldinn fundur með nýjum félögum í Mannréttindahúsinu.
Í október verður kynning á nýju matreiðslubókinni sem Nýrnafélagið var að gefa út og  er fyrir þá sem eru með skerta nýrnastarfsemi.
Báðir fundirnir verða auglýstir síðar.

www.facebook.com/nyrnafelagid/

www.nyra.is

Útgefandi: Nýrnafélagið, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Ritstjóri: Guðrún Barbara Tryggvadóttir
Ábyrgðarmaður: Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir
Sími: 5619244

nyra@nyra.is

Opnunartími:
Þriðjudagur og fimmtudagur kl.13:00-16:00
Svarað er í síma félagsins alla daga

Allur réttur áskilin © 2026 Nýrnafélagið, 
Þú færð þennan netpóst af því þú ert félagi í Nýrnafélaginu.

Nýrnafélagið

Sigtún 42

Reykjavík 105

Iceland

Add us to your address book

Þú getur skráð þig af póstlistanum hér.

Email Marketing Powered by Mailchimp