Kæru félagar.
Apríl er mánuður aðalfundar Nýrnafélagsins.
Þar er árið gert upp bæði fjárhagslega og starfið sjálft eins og hvað hefur áunnist og hvað er hægt að gera betur.
Allir eru velkomnir á aðalfund og það væri gaman að fá ykkur kæru félagar sem flest til að heyra hvað ykkur finnst og hvað þið viljið að félagið geri.
Meðfylgjandi eru tillögur að lagabreytingum sem lagðar verða fyrir aðalfundinn þann 8. apríl.Innan félagsins hefur gönguhópur verið starfandi en hann hefur verið í dvala núna seinni part vetrar. Við bíðum eftir áhugasömun félögum til að rífa hann af stað aftur þegar vorið er á næsta leiti.
Hópur sem hefur það hlutverk að vera með jafningjastuðning er mjög virkur en vantar alltaf fleiri félaga. Við leitum eftir nýragjöfum, nýrnasjúklingum, fólki í skilun eða hefur verið í skilun. Aðstandendum, ungu fólki með nýrnasjúkdóm, öllum sem hafa einhverja reynslu af þessum sjúkdómi. Nýrnasjúkdómur er langvinnur fjölskydusjúkdómur sem hefur áhrif á alla fjölskylduna.Slökunarhópurinn er líka virkur og vil ég hvetja alla til að ganga í hann. Sérstaklega skilunarsjúklinga því að þar er hægt að tileinka sér hluti sem koma sér vel meðan á skilun stendur og í náinni framtíð.
Svo er það barna- og fjölskylduhópurinn og NýUng ungt fólk með nýrnasjúkdóm.
Af nógu er að taka og það er bara að taka ákvörðun um að ganga í hóp og auka virkni sína um leið.Félag fólks með sykursýki og Nýrnafélagið hafa aukið samstarf sín á milli en margir eru haldnir báðum sjúkdómum. Nú geta þeir félagar sem sækja um hjá öðru hvoru félginu orðið félagi í báðum en borga bara eitt félagsgjald. Fyrsta skrefið í þessu samstarfi var að halda sameiginlegan fræðslufund á alþjóðalega nýrnadeginum, sem tókst mjög vel. Guðrún Barbara Tryggvadóttir
ritstjóri fréttabréfs Nýrnafélagsins |