1. gr.
Nafn félagsins
Nafn félagsins er Nýrnafélagið. Félagið er almannaheillafélag og starfar samkvæmt lögum nr. 110/2021. Félagið er aðili að Öryrkjabandalagi Íslands.
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur félagsins
Tilgangur félagsins, fjármögnun og ráðstöfun fjármuna er að gæta hagsmuna þeirra sem veikjast af nýrnasjúkdómum og aðstandenda þeirra.
Félagið nær tilgangi sínum með því:
Að veita þeim aðstoð sem veikjast af nýrnasjúkdómum.
Að halda uppi fræðslu um nýrnasjúkdóma og kjör þeirra sem haldnir eru þeim sjúkdómum.
Að fylgjast með og kynna nýjungar á sviði meðferðar sjúkdóma í nýrum.
Að halda uppi fræðslu um forvarnir til að koma í veg fyrir nýrnasjúkdóma eins og kostur er.
Að efla samstarf við lækna og hjúkrunarfræðinga og aðra þá sem láta sig varða heilbrigði og velferð nýrnasjúkra.
Að bæta aðstöðu við skilun innanlands.
Að starfa í samvinnu við erlend félög nýrnasjúkra.
Tekjur félagsins eru:
- Félagsgjöld
- Opinberir styrkir
- Styrkir frá Öryrkjabandalagi Íslands
- Aðrir styrkir og framlög svo sem áheit og gjafir
- Ágóði af seldum varningi
Styrkjum og tekjum skal ráðstafað í tiltekin verkefni svo sem:
- Rekstur á skrifstofu félagsins og greiðslur til sérfræðinga
- Útgáfa fræðsluefnis
- Önnur verkefni vegna funda, námskeiða og fræðslu
3. gr.
Félagar
Allir geta orðið félagar sem þess óska og hafa áhuga á að styrkja málstað félagsins.
4. gr.
Aðalfundur
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfundur skal haldinn fyrir 15. maí ár hvert og til hans skal boða skriflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Dagskrá skal fylgja fundarboði. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Rétt til fundarsetu og kosninga hafa allir þeir félagar sem eru skuldlausir við Nýrnafélagið. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.
Fastir liðir á aðalfundi skulu vera:
Setning fundarins.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Lestur fundargerðar síðasta aðalfundar.
Skýrsla stjórnar.
Ársreikningur félagsins skýrður og lagður fram til samþykktar.
Ársreikningur styrktarsjóðsins skýrður og lagður fram til samþykktar.
Skýrslur starfshópa.
Lagabreytingar.
Kosning stjórnar.
Kosning trúnaðarmanna eða skoðunarmanna reikninga, tveggja aðalmanna og eins varamanns til eins árs.
Ákvörðun um félagsgjald.
Önnur mál.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
Endurskoðunarfyrrtæki sér um bókhald, launaútreikning ásamt gerð ársreiknings. Félagsgjald er innheimt við inngöngu í félagið og síðan árlega eftir aðalfund.
Lögum þessum má breyta á aðalfundi. Til þess þarf tvo þriðju hluta greiddra atkvæða.
Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn félagsins fyrir lok febrúar og skulu þær fylgja aðalfundarboði. Aldrei má breyta lögum þessum þannig að raskað sé megintilgangi félagsins.
5. gr.
Stjórn félagsins
Allir félagar sem eru skuldlausir við Nýrnafélagið og eru lögráða geta boðið sig fram í stjórn.
Stjórn félagsins skipa fimm einstaklingar og tveir til vara. Formaður skal kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára. Varamenn skulu vera tveir og einnig kosnir til tveggja ára. Allir stjórnarliðar geta boðið sig fram í þrjú kjörtímabil eða í sex ár. Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund kýs stjórnin varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda úr sínum hópi. Boða skal varamenn á stjórnarfundi og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt.
Stjórnin er ályktunarhæf þegar minnst þrír eru mættir. Ef atkvæði falla jöfn ræður atkvæði formanns.
Formaður getur boðað stjórnarfund hvenær sem hann telur henta. Halda skal minnst fjóra stjórnarfundi á ári. Ritari færir fundargerð.
Prókúruhafar eru gjaldkeri og framkvæmdastjóri félagsins.
Firma ritar formaður félagsins.
Almennir félagsmenn geta farið fram á að haldinn verði félagsfundur telji þeir ástæðu til. Til þess þarf a.m.k. 25 skuldlausa félagsmenn.
6. gr.
Starfshópar
Stjórn félagsins getur myndað starfshópa til þess að sinna ákveðnum verkefnum félagsins.
Einnig geta félagar sem hafa áhuga á sérstöku málefni félagsins myndað hóp til þess að vinna að því. Hver hópur skal vinna náið með stjórn félagsins.
7. gr.
Fulltrúar og stjórn
Fulltrúar tilnefndir til setu á aðalfundi eða í stjórnir annarra félaga
Stjórn félagsins tilnefnir framkvæmdastjóra eða stjórnarmann í stjórn Setursins.
Stjórn félagsins tilnefnir fulltrúa til setu á aðalfundi ÖBÍ í samræmi við lög og gildandi reglur bandalagsins.
8. gr.
Slit félagsins
Til þess að leggja niður félagið þarf samþykki tveggja aðalfunda og skulu félagsslitin samþykkt með tveimur þriðju hlutum greiddra atkvæða á hvorum fundi. Geta skal sérstaklega áforms um félagsslit í fundarboði. Verði félaginu slitið skulu eignir þess ganga til skilunardeildar Landspítalans.
Samþykkt á aðalfundi 31.mars 2011 Breyting samþykkt á aðalfundi 26. mars 2015.
Breytingar samþykktar á aðalfundi 14. maí 2019.
Breytingar samþykktar á aðalfundi 11. maí 2021.
Breytingar samþykktar á aðalfundi 10. maí 2022.