Aðalfundur Nýrnafélagsins verður haldinn 10. mai
Fundurinn verður haldinn 10. maí næstkomandi að Hátúni 10 kl. 17.00.
Dagskrá:
Setning fundarins
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Lestur fundargerðar síðasta aðalfundar
Skýrsla stjórnar
Endurskoðaður ársreikningur félagsins lagður fram, skýrður og afgreiddur
Endurskoðaður ársreikningur styrktarsjóðsins lagður fram, skýrður og afgreiddur
Skýrslur starfshópa
Lagabreytingar
Kosning stjórnar
Kosning skoðunarmanna reikninga, tveggja aðalmanna og eins varamanns
Ákvörðun um árgjald
Önnur mál
Eftirfarandi lagabreytingar verða lagðar fyrir aðalfundinn:
- lagabreyting.
Fyrsta málsgrein 5. greinar er í dag: „Allir skuldlausir félagar sem eru lögráða geta boðið sig fram í stjórn“ verður: „Félagsmenn sem eru skuldlausir við Nýrnafélagið og eru lögráða geta boðið sig fram í stjórn“.
2. lagabreyting.
Innskot sem sem ekki er fyrir hendi í dag en verður fimmta málsgrein 5. greinar og hljóðar svo:,, Firma ritar formaður”.