Fréttabréf Nýrnafélagsins í júlí 2026

Kæru félagar.

Nú er sumar gleðjist gumar, gaman er í dag.
Það má nú til sanns vegar færa að sumar á Íslandi er engu líkt.  Björtu næturnar, gróðurinn sem skartar sínu fegursta og jafnvel rigningin á sinn sess í hverju hjarta.
Nú er tíminn til að njóta, láta svolitið eftir sér og stunda núvitund. Hún er það dýrmætasta sem við getum gefið sjálfum okkur.
Sumarið færir okkur líka Reykjavíkur Maraþonið og er það eitt helsta markaðsátak Nýrnafélagsins. Allt þetta fólk sem hleypur fyrir þá sem eru nýrnaveikir og allir þeir sem heita á hlaupafólkið.

Við hjá félaginu þurfum alltaf að staldra við þegar að þessu kemur, því að fórnfýsin og það að gefa svona mikið af sér eins og þetta fólk gerir, veldur því að við verðumr klökk af þakklæti,
Þið eruð stórkostleg.

Bestu kveðjur.
Guðrún Barbara Tryggvadóttir
framkvæmdastjóri  Nýrnafélagsins

Fréttir úr starfinu

Aðalfundur Nýrnafélagsins var haldinn þann 14. apríl síðastliðinn.  Þar fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf og þar á meðal voru nýir einstaklingar kosnir í stjórn.
Stjórn fyrir starfsárið 2026-2027 er eftirfarandi:
Formaður, Helga Guðrún Loftsdóttir, varaformaður, Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir, gjaldkeri, Sesselja Jónsdóttir, ritari, Anna Sigríður Gunnarsdóttir og meðstjórnandi er Guðlaug Halldórsdóttir. Varamenn eru þær Svanhvít Sigurðardóttir og Hafdís Brynja Guðmundsdóttir.

Markmið stjórnarinn fyrir starfsárið 2026-2027 eru:

  • Kynna félagið betur og fjölga félögum.
  • Auka fræðslu fyrir þá sem eru komnir á lista  fyrir nýraígræðslu.
  • Halda við vitundarvakningu um að of hár ómeðhöndlaður blóðþrýstingur sé aðalorsökin að lokastigs nýrnabilun.

Stofnuð hefur verið fræðslunefnd sem á að halda utan um alla fræðslu fyrir nýrnasjúka og sérstaklega þá sem fara í nýraígræðslu. Hildigunnur Friðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur er formaður nefndarinnar.

Einnig er hópur aðstandenda nýrnasjúkra í burðarliðnum. Ákveðið hefur verið að halda fundi einu sinni í mánuði fram að jólum. Eftirfarandi dagsetningar hafa verið nefndar: 16,9, 14.10, 18,11 og 16,12. Hugmyndin er að hittast kl. 8:00 áður en að fólk mætir til vinnu.  Mismunandi efni verða tekin fyrir á hverjum fundi, en endilega takið dagana frá.

Þann 30. október næstkomandi verður Nýrnafélagið 40 ára og stefnt verður að því að halda upp á afmælið með veglegum afmælisfundi. Sjá nánar um það síðar.

ÁLYKTUN AÐALFUNDAR NÝRNAFÉLAGSINS 14. APRÍL 2026

Varðar blóðþrýstingsmælingar hjá heilsugæslu á Íslandi
Aðalfundur Nýrnafélagsins skorar á heilsugæsluna að tryggja reglubundnar blóðþrýstingsmælingar hjá öllum sjúklingum.
Ómeðhöndlaður háþrýstingur er helsta orsök nýrnabilunar á lokastigi á Íslandi, en í flestum öðrum löndum er sykursýki algengari orsök. Þetta bendir til þess að efla þurfi eftirlit með blóðþrýstingi hér á landi.
Jafnframt er almenningur hvattur til að fylgjast með blóðþrýstingi sínum.

Hressir stjórnarliðar núverandi og fráfarandi stjórnar Nýrnafélagsins á aðalfundinum

Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2025 til 2026, flutt á aðalfundi þann 14. apríl 2026.

Skýrsla stjórnar fjallar um starfsemi félagsins frá aðalfundi til aðalfundar. Að þessu sinni frá 8. apríl 2025 til dagsins í dag.

Stjórn fyrir starfsárið 2025 til 2026 var þannig kosin og var síðan sett í embætti að formanni undanskildum á fyrsta stjórnarfundi. Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir formaður, Gísli Steinn Pétursson varaformaður, Helga Guðrún Loftsdóttir ritari, Sigríður Ragna Jónasdóttir gjaldkeri, Svanhvít Sigurðardóttir meðstjórnandi og  varamenn þau Guðlaug Halldórsdóttir og Arnar Már Frímannsson.
Stjórnarfundir voru haldnir átta sinnum á starfsárinu.
Markmið stjórnar fyrir þetta starfsár var :

Að Nýrnafélagið beiti sér fyrir því að nýrnasjúkum og nýraþegum standi til boða að fá endurhæfingu.Fundur var haldinn með Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítala og nýrnalækni.
Svar við fyrirspurn vegna þessa máls frá Runólfi var að endurhæfing á landsvísu væri í skoðun og hann hefði komið nýrnasjúkum á framfæri þar. „Það mun örugglega taka einhvern tíma en ég mun halda þjónustu fyrir nýrnasjúka á lofti“, sagði Runólfur.

  1. Auka fræðslu fyrir þá sem eru komnir á lista fyrir nýraígræðslu.

Viðtal við þrjá einstaklinga sem allir hafa fengið nýra í Svíþjóð. Bæklingur um þetta efni mun byggjast á þessum viðtölum. Hildigunnur Friðjónsdóttir nýrna -hjúkrunarfræðingur hefur tekið að sér að stýra og hafa hönd í bagga með faglegt efni í bæklingnum.

  1. Auka aðgengi skilunarsjúklinga að meðferð í heimabyggð.

Fundur var einnig haldinn með Runólfi um þetta málefni og telur hann þetta vel athugandi ef að sjúkrastofnun í heimabyggð vill og getur tekið þetta að sér. En skilyrði fyrir þessu er að sveitafélagið hafi samband af fyrra bragði við Landspítala.
Gunnhildur Axelsdóttir fjölskyldufræðingur hefur verið að vinna að þessu fyrir Egilsstaði en þar er vöntun á blóðskilun.

Fréttabréf hefur verið gefið út rafrænt fjórum sinnum á þessu starfsári en fundarboð eru líka send út rafrænt ásamt auglýsingum á FB og heimasíðu.
Fréttabréfin eru vistuð á heimasíðu félagsins.
Matreiðslubókin sem kom út á seinasta ári hefur selst vel og almenn ánægja ríkir með hana

Fundir og viðburðir
Nýrnafélagið var með nýung í maí en það hélt grillhátíð í Húsdýragarðinum ásamt Félagi sykursjúkra og fengu allir ókeypis inn, bæði félagar og venslamenn.
Nýrnafélagið er eitt af góðgerðafélögunum sem hægt er að styrkja í Reykjavíkurmaraþoninu sem alltaf er haldið í ágúst. Félagið vonar að sem flestir hlaupi fyrir það. Hlauparar fá gefins hlaupaboli frá Nýrnafélaginu og einnig leigði félagið kynningarbás í Laugardalshöll þar sem allir hlauparar komu til að ná í sín hlaupagögn og til að heilsa upp á þau góðgerðafélög sem þeir styrkja.
Á sjálfan hlaupadaginn var góður hópur stuðningsaðila frá Nýrnafélaginu sem létu óspart í sér heyra til að hvetja sitt fólk.
Gaman væri að fleiri félagar sæju sér fært að koma til að hvetja á sjálfan hlaupadaginn.
Maraþonið er mikilvægt fyrir Nýrnafélagið bæði  fjárhagslega og svo stuðlar það líka að heilsusamlegri hreyfingu.

Fundur þar sem nýir félaga hittust og fræddust um hvað Nýrnafélagið getur gert fyrir þá, var haldinn í september en ekki var hann fjölsóttur  sem er miður þar sem að allir hafa gott af að kynnast hvað félagið stendur fyrir.
Framkvæmdastjóri fór á  deild 12G sem tekur við nýrnasjúklingum og kynnti félagið fyrir starfsfólkinu.

Fræðslufundur var haldinn í október og var hann vel sóttur en efnið var næring fyrir nýrnasjúka í umsjón Berthu Ársælsdóttur næringarfræðings sem jafnframt er næringarfræðingur Nýrnafélagsins. Nýja matreiðslubókin var kynnt og Sepideh blóðskilunarsjúklingur og félagi í Nýrnafélaginu sýndi myndband frá sjónarhorni blóðskilunarsjúklings.

Jólafundur var haldinn í desember með glensi, gamni og hinu árlega spilabingói þar sem glæsilegir vinningar voru í boði. Eiríkur Jónsson, þvagfæraskurðlæknir kom og las upp úr bók sinni Andrými. Hlauparar voru heiðraðir með rós og börnin sem hlupu fengu gjafir við þeirra hæfi. Einnig voru tónlistaratriði og fjöldasöngur.

Mars er mánuður Alþjóðlega nýrnadagsins og var hann þann 12. mars síðastliðinn. Nýrnafélagið hélt upp á hann með að halda sameiginlegan  fræðslufund með Fagdeild nýrnahjúkrunarfræðinga.
Þær Sigríður Einarsdóttir og Selma Maríusdóttir héldu erindi.
Fundurinn tókst vel og var vel mætt á hann.

Gunnhildur Axelsdóttir fjölskyldufræðingur starfar fyrir félagið og geta félagsmenn leitað til hennar til að fá ráðgjöf og stuðning eða ef að þá vantar aðstoð í réttindamálum.

Bertha María Ársælsdóttir næringarfræðingur vinnur líka fyrir félagið og er hún með viðtöl á skrifstofu Nýrnafélagsins. Þessi þjónusta er gjaldfrjáls fyrir félagsmenn.

Nýrnafélagið er aðili að norrænum samtökum félaga nýrnasjúkra á Norðurlöndunum, nefnt NNS. Fundur samtakanna var núna haldinn í Osló og mættu tveir félagar á þann fund. Einnig hafa verið netfundir.

Einnig sótti Nýrnafélagið um aðild að EKPF sem eru samtök nýrnafélaga í Evrópu. Fyrsti fundurinn sem Nýrnafélagið sendi fulltrúa á var haldinn 4. til 5. nóvember í Mílanó. Alltaf er gott að hitta erlenda aðila til að fræðast og bera sig saman við og heyra hvað verið er að gera í löndunum í kringum okkur.

Félagið sendi glaðning á blóðskilunardeildir út um allt land bæði fyrir jól og páska.

Baráttumál félagsins:

Vitundarvakning um háan blóðþrýstinga og hættuna á nýrnabilun Í dag er hár, ómeðhöndlaður blóðþrýstingur ENN ÞÁ helsta orsök nýrnabilunar á Íslandi. Þessu er auðvelt að breyta með samstilltu átaki landlæknis, lækna, heilsugæslunnar og annarra sem þetta málefni varðar. Einnig verður almenningur að taka ábyrgð og fylgjast með blóðþrýsting vegna þeirra alvarlegu sjúkdóma sem honum getur fylgt ef hann er ekki meðhöndlaður í tíma.

Blóðskilunarsjúklingar fái aksturskostnað greiddan. Félagið hefur með aðstoð Gunnhildar fjölskyldufræðings komið þessu máli í viðunandi horf. Nú er vegalengdin sem Sjúkratryggingar greiða orðin100 km aðra leiðina

Fleiri skilunardeildir verði settar út á land.Þetta mál er í athugun og stefnt er að því að Egilsstaðir fái næstu skilun.

Fjármál: Árið 2025 var gott fjármálalega séð fyrir Nýrnafélagið. Það skilaði hagnaði en það var vegna þess að félagið fór tvisvar sinnum í símasafnanir á árinu.
Erfitt er að gera fjárhagsáætlun þar sem helstu styrkir félagsins frá bæði ÖBÍ og Heilbrigðisráðuneytinu eru ekki fyrirsjáanlegir.

Erfiðlega gengur að innheimta félagsgjöld, en félagið tekur alltaf tillit til þeirra sem ekki geta greitt og það eru margir í félaginu.

Nýrnafélagið rekur netverslun á heimasíðunni sinni og þar er hægt að kaupa matreiðslubókina og ýmislegt annað.
Einnig eru seldar þar myndir eftir Ragnar Kristjánsson, en hann gefur allan ágóða af myndunum beint til Nýrnafélagsins.

Skrifstofa Nýrnafélagsins var opin á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 13.00 til 16.00 á þessu starfsári.
Sími skrifstofunnar hefur verið framsendur í síma framkvæmdarstjóra utan skrifstofutíma þannig að alltaf er svarað í síma félagsins.

Stjórn Nýrnafélagsins þakkar öllum félögum gott samstarf og einnig öllum sem hafa liðsinnt félaginu á liðnu starfsári.

Helga Hallgrímsdóttir
formaður Nýrnafélagsins starfsárið 2025-2026

Á döfinni hjá Nýrnafélaginu:

Ágúst er helgaður Maraþoninu og vonum við að sem flestir séu farnir að undirbúa sig til að taka þátt eða að hvetja vini og ættingja til að gera það og safna fyrr Nýrnafélagið.

Grillhátíð í Húsdýragarðinum sem átti að vera  í maí, frestast fram í ágúst.

September:
14. til 18. september er í boði hvíldardvöl í Bergheimum á Sólheimum fyrir félaga Nýrnafélagsins. Dvölin er félögum að kostnaðarlausu og stendur ölum félögum til boða. Sott er um á skrifstofu Nýrnafélagsins.

16.9. Hópur aðstandenda hittist, nánar auglýst síðar.

Fræðsla um sólarvörn fyrir þá sem eru á ónæmisbælandi lyfjum, dagsetning auglýst síðar.

Október:
14.10. hópur aðstandenda hittist, nánar auglýst síðar.

Afmælishátíð, 30. október

Nóvember:
Stefán Pálmason tannlæknir verður með fræðslu um tannheilsu hjá nýrnasjúkum, þann 17. nóvember kl. 17:30.

18.11.Hópur aðstandenda hittist.

Desember:
Jolafundur þann 8. desember kl. 18:00.
16.12. hópur astandenda hittist.

www.nyra.is
Útgefandi: Nýrnafélagið, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Ritstjóri: Guðrún Barbara Tryggvadóttir
Ábyrgðarmaður: Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir
Sími: 5619244

nyra@nyra.isOpnunartími:
Þriðjudagur og fimmtudagur kl.13:00-16:00
Svarað er í síma félagsins alla daga

Allur réttur áskilin © 2026 Nýrnafélagið, 
Þú færð þennan netpóst af því þú ert félagi í Nýrnafélaginu.

Nýrnafélagið

Sigtún 42

Reykjavík 105

Iceland

Add us to your address book

Þú getur skráð þig af póstlistanum hér.

Email Marketing Powered by Mailchimp

© Copyright - Nýrnafélagið