Fréttabréf Nýrnafélagsins í mars 2025

<!doctype html>


 

 

Nýrað

Fréttabréf Nýrnafélagsins í mars 2025

 

Fræðslundur þann 13. mars á  Alþjóðlega nýrnadeginum

á hótel Hilton  kl.17:30

Kæru félagar.
Fjölskyldu- og barnahópur Nýrnafélagsins fer hægt en örugglega. af stað. Nú er hann orðinn formlegur aðili að Umhyggju sem veitir börnum alls konar þjónustu og bjargráð sem Nýrnafélagið hefur ekki aðgang að. Þess vegna hvetjum við fólk til að fara inn á heimasíðu Umhyggju, umhyggja.is og kanna það sem er í boði.
Einnig hvetur félagið foreldra nýrnaveikra barna að ganga í fjölskyldu- og barnahópinn til að vera með fólki sem er í sömu sporum og hefur svipaða reynslu og getur miðlað af henni. Það er mjög dýrmætt að hitta aðra sem eru á svipuðum stað í lífinu.
Nú er mars mánuður  og honum fylgir Alþjóðlegi nýrnadagurinn sem ber upp á þann 13. mars.  Fræðslufundur verður haldinn í tilefni dagsins á Hilton hóteli. Nú ætlum við að halda hann með Félagi fólks með sykursýki og höfða þannig til þeirra fjölmörgu sem eru bæði með nýrnasjúkdóm og sykursýki. Í framhaldi af þessum fundi verður hægt að ganga í bæði félögin en greiða bara eitt félagsgjald.
Fræðslufundurinn er ekki bara fyrir þá sem eru með hvort tveggja sykursýki og nýrnasjúkdóm, heldur alla félagsmenn bæði félaga.Guðrún Barbara Tryggvadóttir
ritstjóri fréttabréfs Nýrnafélagsins

Á döfinni hjá Nýrnafélaginu:

13. mars, Alþjólegi nýrnadagurinn, fræðslufundur á Hilton, kl. 17:30

8. apríl, aðalfundur Nýrnafélagsins í Mannréttindahúsinu kl. 18:00

Aukin þjónusta við nýrnasjúklinga á SAK

•Talsverður fjöldi fólks sem er búsettur á Norðausturlandi hefur hingað til þurft að fara suður yfir heiðar til að hitta nýrnalækni. Mánaðarlega má gera ráð fyrir því að 20-25 einstaklingar hafi þurft að ferðast suður í þeim erindagjörðum. Nú er formlega hafinn undirbúningur á því að framvegis munu nýrnalæknar frá Landspítalanum koma á SAK á sex vikna fresti, tvo daga í senn.

Kokkabókin fer að koma út, sjá formála frá Helgu Hallgrímsdóttur formanni Nýrnafélagsins

www.facebook.com/nyrnafelagid/

www.nyra.is

Útgefandi: Nýrnafélagið, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Ritstjóri: Guðrún Barbara Tryggvadóttir
Ábyrgðarmaður: Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir
Sími: 5619244

nyra@nyra.is

Opnunartími:
Þriðjudagur og fimmtudagur kl.13:00-16:00
Svarað er í síma félagsins alla daga

Allur réttur áskilin © 2026 Nýrnafélagið, 
Þú færð þennan netpóst af því þú ert félagi í Nýrnafélaginu.

Nýrnafélagið

Sigtún 42

Reykjavík 105

Iceland

Add us to your address book

Þú getur skráð þig af póstlistanum hér.

Email Marketing Powered by Mailchimp