Það er gott fólk víða um land ásamt félögum og fyrirtækjum sem gera starf okkar mögulegt. Ef þú vilt styrkja okkur, þá er það ómetanlegt:
Viltu styrkja Félag nýrnasjúkra og rekstur félagsins: Banki: 115 – 26 – 18061 kt. 670387 – 1279
REGLUR fyrir Styrktarsjóð Nýrnafélagsins
1. gr.
Nafn og tilgangur
Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Nýrnafélagsins. Tilgangur sjóðsins er tvíþættur:
a) Aðstoð við félagsmenn Nýrnafélagsins með styrkveitingum vegna sértækra vandamála sem aðrir styrkja ekki.
b) Bæta upplýsingar og afla þekkingar í þágu nýrnasjúkra.
2. gr.
Tekjur
Tekjur sjóðsins eru:
a) Af sölu minningarkorta og annars varnings.
b) Verðbætur og vextir.
c) Framlög til sjóðsins og annað fé, svo sem áheit og gjafir.
3. gr.
Stjórn
Stjórn Nýrnafélagsins fer með stjórn sjóðsins. Allar ákvarðanir varðandi sjóðinn skulu bókfærðar í fundargerðum félagsins.
4. gr.
Hæfi stjórnarmanna.
Stjórnarmaður sem veit um ástæður er kunna að valda vanhæfi hans við úthlutun styrkja úr sjóðnum skal án tafar vekja athygli formanns stjórnar á því og ber formanni þá að kalla til varamann sem tekur við skyldum aðalmanns við úthlutunina.
5. gr.
Fyrirkomulag úthlutunar
Stjórn Nýrnafélagsins tekur ákvörðun um úthlutun.
6. gr.
Styrkir
Veittir eru styrkir skv. gr. 1 a) að hámarki á ári samtals kr. 300.000, en styrkur til hvers einstaklings verður aldrei hærri en kr. 60.000 á mann. Niðurstaða úthlutunar skal liggja fyrir eigi síðar en tíu vikum eftir að umsókn berst.
Stjórn tekur ákvörðun um upphæð og tíma úthlutunar skv. gr. 1 b) hverju sinni. Framkvæmdastjóri Nýrnafélagsins sér um greiðslur samkvæmt ákvörðun stjórnar.
7. gr.
Umsóknir
Umsókn um styrkveitingu skv. gr. 1 a) skal send á umsóknareyðublaði sjóðsins til skrifstofu Nýrnafélagsins ásamt viðeigandi gögnum samkvæmt upplýsingum á vef félagsins og umsóknareyðublaði hverju sinni. Umsóknaraðilar skulu vera skuldlausir félagsmenn í Nýrnafélaginu.
8. gr.
Umsýsla
Stjórnin skal á hverjum tíma ávaxta fé sjóðsins með bestu fáanlegum kjörum á tryggilegan hátt. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið og skulu reikningar hans meðhöndlaðir á þann hátt sem kveður á um í lögum félagsins og birtast í ársreikningi félagsins.
9. gr.
Niðurlagning sjóðsins
Heimilt er að leggja sjóðinn niður að tillögu meiri hluta stjórnar ef sú tillaga hlýtur samþykki 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi félagsins. Verði sjóðurinn lagður niður skulu eigur hans renna til Nýrnafélagsins.
Samþykkt á stjórnarfundi 18. júlí 2019
Samþykkt á stjórnarfundi 19. janúar 2021
Samþykkt á stjórnarfundi 21. október 2025

