Markmið Nýrnafélagsins er að styðja alla þá sem veikjast af langvinnum nýrnasjúkdómum og aðstandendur þeirra.
- Að gæta hagsmuna nýrnasjúkra.
- Að fræða almenning og sjúklinga um nýrnasjúkdóma, meðferð þeirra og félagsleg vandamál, sem þeim fylgja.
- Að efna til fræðslufunda, skemmtifunda, skemmtiferða og annara félagsstarfa.
- Að safna fé til styrktar fræðslustarfi og bættri þjónustu við nýrnasjúka.
- Að halda sambandi við systurfélög á norðurlöndum og víða erlendis.
Helstu tekjulindir félagsins eru:
Rekstur félagsins:
Félagsgjöld.
Framlög frá ýmsum.
Félagsgjöld.
Framlög frá ýmsum.
Minningarsjóðurog styrktarsjóður Félags Nýrnasjúkra:
Minningakort
Heillaskeyti
Framlög og gjafir
Markmið stjórnar starfsárið 2022 til 2023
- Fjölga félögum og ná meiri virkni þeirra í Nýrnafélaginu
- Efla forvarnir gegn nýrnasjúkdómum og nýrnabilun
- Auka jafningjastuðning og hagsmunagæslu fyrir félagsmenn Nýrnafélagsins
Markmið stjórnar starfsárið 2021 til 2022
- Fjölga og virkja félaga.
- Efla forvarnir gegn nýrnasjúkdómum og nýrnabilun.
- Auka fræðslu og samskipti við Landspítala
- Stofna hóp foreldra nýrnasjúkra barna og styðja hann.