MARKMIÐ
Jafningjastuðningur er fyrir nýrnasjúka, nýragjafa og verðandi nýragjafa og aðstandendur þeirra.
Við styðjum þig í gegnum stuðningsnet sjúklingafélaganna með jafningjastuðningi.
Stuðningsnetið hefur það markmið að veita þeim sem veikjast af alvarlegri nýrnabilun og aðstandendum þeirra beinan aðgang að félagsmönnum sem vilja miðla af reynslu sinni. Stuðningsnetið gefur þér tækifæri á að tala við félaga sem hafa reynslu af því að veikjast af alvarlegri nýrnabilun og vera í blóðskilun eða kviðskilun. Einnig félaga sem hafa þegið nýra og aðra sem hafa gefið nýra. Í stuðningsnetinu eru einnig aðstandendur sem gjarnan vilja miðla af reynslu sinni.
Öll samtöl við félaga í stuðningsnetinu eru í trúnaði.
896 6129
nyra@nyra.is