Höf.: Bertha María Ársælsdóttir matvæla- og næringarfræðingur M.Sc.

Í aðdraganda jóla er tilvalið að rifja upp grunnfræðslu varðandi mataræði og skerta nýrnastarfsemi.

Á vef Nýrnafélagsins má annars vegar finna bláa heftið um að Hægja á nýrnabilun þar sem farið er í helstu atriði sem huga þarf að þegar dregur úr nýrnastarfseminni. Hins vegar er þar að finna góð myndbönd úr Nýrnaskólanum þar sem næringarfræðingur fer yfir helstu atriði, næringarefnin og mataræði.

Að því loknu þarf að taka með í reikninginn á hvaða stigi sjúkdómurinn er um þessar mundir samkvæmt síðustu skoðun nýrnalæknisins og þá má taka ákvörðun um hvers konar jólamatur skuli vera á boðstólum.

Íslenskar jólahefðir eru ennþá mjög íhaldssamar og byggja að mestu leyti á söltum og reyktum mat. Það kemur til af því að það var hin hefðbundna verkunaraðferð fyrir tíma kæli- og frystiskápa og hefur fylgt okkur sem hátíðarmatur fram á þennan dag. Hins vegar hefur fæðuframboð tekið miklum breytingum frá því að söltun og reyking voru helstu framleiðsluaðferðir. Í dag eru matvöruverslanir stútfullar af ýmiss konar ferskmeti svo sem ávöxtum, grænmeti, kjöti og fiski svo fátt eitt sé nefnt.

Mælt er með því að fæðuvalið byggi fyrst og fremst á ferskum matvörum úr öllum fæðuflokkum. Flestir ættu að geta fundið ferskt kjöt og fiskmeti sem kitlar getur bragðlaukana eftir góða kryddun og eldun. Einnig væri mjög æskilegt að auka hlut grænmetis og ávaxta í flestum máltíðum.

Ef löngun er í hangikjötið og hamborgarhrygginn um jólin er skynsamlegt að velja saltminnstu tegundirnar en það er töluverður munur á saltnotkun milli framleiðenda. Það má lesa saltinnihald á næringargildismerkingum þar sem fram kemur hversu mikið salt má finna í 100 g af vörunni.

Samkvæmt síðustu athugun var saltinnihald í hamborgarhryggjum sem í boði voru á höfuðborgarsvæðinu allt frá 1,1 g upp í 2,6 g í 100 g. Það er töluverður munur og þessi munur margfaldast eftir því sem skammtastærðin stækkar.

Sama er að segja um hangikjötið en í fyrrgreindri athugun var saltinnihald frá 0,7 g upp í 3,2 g sem er ennþá meiri munur en í hamborgarhryggjunum. Það getur því skipt mjög miklu máli að velja saltminni tegundir og gæta að því hversu stór skammtur er settur á diskinn.

Annað mikilvægt atriði er að borða einungis eina máltíð með svo saltríku innihaldi en sleppa því að borða afganga næstu daga á eftir – og sérstaklega þegar maður hefur valið að borða aðra tegund af saltríku kjöti eða fiski í aðalmáltíð dagsins!

Aðrar saltríkar fæðutegundir sem algengar eru á hátíðarborðinu eru meðal annars reyktur lax og síld en báðar þessar tegundir eru yfirleitt mjög saltríkar. Marineraða síld má skola eða útvatna til að minnka saltinnihald en mikilvægt að gæta þess að borða ekki svo saltríkar fæðutegundir í sömu máltíð og hangikjöt eða annað saltað og reykt kjöt. Benda má á ferskmeti eins og ferskan fisk t.d. rækjur og grænmeti og ávexti í meðlæti.

Að lokum skal nefna að fjölbreytni og ferskleiki eru lykilatriði í fæðuvali um hátíðarnar.

Gleðilega hátíð og njótið vel.