
Þann 12. apríl er alþjóðlegi nýrnadagurinn þar sem nýrnafélög um víða veröld kynna málefni nýrnasjúkra. Málefnið sem valið hefur verið í ár eru forvarnir.
Nýrnafélagið á Íslandi heldur úti forvörnum fyrir sitt fólk í sínum daglega rekstri með því að leggja áherslu á næringu og hreyfingu sem eru grunnforvarnir.
Félagið heldur úti gönguhóp og er með næringarráðgjafa á sínum snærum. Einnig er félagið ný búið að gefa út matreiðslubókina: Borðaðu hollt sem er ekki bara fyrir nýrnasjúka heldur líka þá sem vilja hollt mataræði.
En stundum koma upp lífsstílssjúkdómar svokallaðir þrátt fyrir að fólk lifi heilbrigðu lífi.
Hár blóðþrýstingur er einn af þessum sjúkdómum sem getur skemmt verulega út frá sér, sé hann látinn vera ómeðhöndlaður.
Hann er helsta orsök lokastigs nýrnabilunar á Íslandi. Á Norðurlöndunum er sykursýki megin orsök en hún er í fjórða sæti hér. (Miðað við tölur frá 2020).
Sú staðreynd að það sé hægt að fækka þeim sem fá lokastigs nýrnabilun á Íslandi með reglubundnu blóðþrýstings eftirliti er gott að vita en samt svo sorglegt. Þetta hefur verið vitað í mörg ár og svo margir hefðu getað sloppið við að missa nýrun , bara ef að tekið hefði verið á þessu.
Nýrnafélagið hefur reynt að vekja athygli á þessu í langan tíma en við litlar undirtektir hvorki frá almenningi né heilbrigðisþjónustunni.
Í tilefni dagsins skorar Nýrnafélagið á alla sem tengdir eru heilbrigðisþjónustu á Íslandi að leggjast á eitt og snúa þessari þróun við. Það er ekki bara það að auka lífsgæði almennings með því að sleppa við að fá lífsógnandi sjúkdóm heldur er þetta líka þjóðfélagslega hagkvæmt.
Nýrnafélagið hvetur líka almenning og þar á meðal ungt fólk að taka málin í sínar hendur og biðja um blóðþrýstingsmælingu í læknaheimsóknum. Einnig er hægt að fara í apótek og láta mæla blóðþrýstinginn og líka er hægt að kaupa blóðþrýstingsmæli og mæla sjálfur. Þetta er svo auðvelt en getur skipt sköpum.
Snúum vörn í sókn og fækkum tilfellum af lokastigs nýrnabilun af völdum of hás ómeðhöndlaðs blóðþrýstings.
Guðrún Barbara Tryggvadóttir,
framkvæmdastjóri Nýrnafélagsins.

