
Þessir ferðamenn þurfa að leggja mikið á sig og því hefur ekki verið algengt að þeir komi hingað,“ segir Björg Sigurðardóttir, deildarstjóri á skilunardeild Landspítalans. Liðin ár hefur ferðamönnum, sem þurfa blóðskilun, fjölgað talsvert. Þegar hafa nokkrir bókað þessa þjónustu fyrir sólmyrkvann í ágúst.
„Fyrir covid voru þetta kannski tíu manns sem komu á hverju ári en nú eru þeir hátt í 40,“ segir Björg. Fólk með nýrnabilun þarf á blóðskilun að halda og er þá blóð þess hreinsað með aðstoð vélar. Algengt er að fólk þurfi að koma á blóðskilunardeild þrisvar í viku í fjóra tíma í senn. Björg segir að þegar hafi fjórir óskað skilunarmeðferðar í kringum sólmyrkvann og tekið verði á móti þeim.
„Einhverjir þeirra munu fá meðferðina á landsbyggðinni en það er hægt að veita þessa meðferð á Akureyri, Selfossi og í Neskaupstað.“ Í dag eru um 70 til 80 manns í blóðskilun hverju sinni í Reykjavík og tíu manns á landsbyggðinni, að sögn Bjargar. Hefur þeim fjölgað síðustu ár með fjölgun íbúa hér og lengri lífaldri. „Á síðasta ári komu 38 beiðnir frá erlendum ferðamönnum og við gátum tekið 33 þeirra í meðferð. Það sem af er þessu ári hafa borist 22 beiðnir frá ferðamönnum sem hyggjast koma hingað á árinu og það mun örugglega bætast töluvert við það. Við sjáum mikla fjölgun á þessum beiðnum síðastliðin ár,“ segir hún.
„Deildin hefur ekki pláss til að taka nema einn ferðamann hvern dag og stundum getum við ekki tekið neinn ef fjöldi íslenskra ríkisborgara fyllir í öll plássin. Við reynum samt alltaf eftir fremsta megni að verða við óskum fólks og allir sem hafa sent inn beiðni fyrir þetta ár eru búnir að fá samþykki.“ Björg segir að ferðamenn labbi ekki inn af götunni á blóðskilunardeild. Undirbúa þurfi komu þeirra mjög vel.
„Allar upplýsingar um þeirra meðferð í heimalandinu þurfa að berast til okkar með góðum fyrirvara og taka þarf ýmsar blóðprufur og skimanir fyrir sýkingum áður en þeir koma. Enda hafa þessir einstaklingar samband við okkur með góðum fyrirvara til að tryggja að þeir fái pláss og geti þá skipulagt ferðalagið.“

