Helstu ástæður nýrnabilunar á Íslandi 2020
Teknar hafa verið saman helstu orsakir lokastigsnýrnabilunar á Íslandi á síðasta ári, árið 2020: (ath er ekki alveg sama og helsta orsök nýrnasjúkdóma- því þeir leiða ekki alltaf til lokastigsnýrnabilunar)
- Nýrnaæðasjúkdómar (háþrýstingur) 31%
- Gauklasjúkdómar 24%
- Millivefsbólga –(lyf, steinar ofl) 14%
- Sykursýki 12%
- Blöðrunýrnasjúkdómur 6%
- Aðrir sjúkdómar
Þessar prósentutölur eru byggðar á tiltölulega fáum einstaklingum (49), en gefur góða hugmynd um stöðuna.