Næringarráðgjöf
Höf.: Bertha María Ársælsdóttir matvæla- og næringarfræðingur M.Sc.

Gott mataræði og lífsstíll er mikilvægur þáttur í því að halda orku og góðri heilsu. Þegar sjúkdómar banka uppá þá eykst mikilvægi þessarra þátta enn meira.

Embætti landlæknis gefur út almennar leiðbeiningar um mataræði sem eru grunnurinn að góðum lífsháttum fyrir þjóðina en einstaklingsbundnar ráðleggingar taka mið af líkamsástandi og matarvenjum. Næringarfræðingar eru sérfræðingar í næringarmeðferð einstaklinga – bæði fyrir heilbrigða og einnig þegar glímt er við sjúkdóma eins og skerta nýrnastarfsemi.

Einstaklingar með skerta nýrnastarfsemi geta fylgt almennum ráðleggingum um mataræði frá embætti landlæknis því þar er lögð áhersla á fjölbreytt mataræði þar sem ferskar fæðutegundir eru grunnur máltíða. Einnig getur gott fæðuval haft fyrirbyggjandi áhrif á versnun sjúkdómsins.

Mikilvægi einstaklingsbundinna ráðlegginga eykst þegar sjúkdómurinn ágerist og þá er farið eftir niðurstöðum rannsókna. Einungis læknar geta túlkað þessar niðurstöður og gefið leiðbeiningar um hvaða breytingar þurfi að gera í mataræði. Næringarfræðingar aðstoða einstaklinga við að taka mið af þessum leiðbeiningum og gefa ráð um fæðuval.

Til viðbótar við skerta nýrnastarfsemi eru einstaklingar oft að glíma við fleiri heilsubresti svo sem sykursýki og hjartasjúkdóma. Það getur því verið flókið að taka mið af mismunandi ráðleggingum lækna eftir því hvaða sjúkdómur á í hlut.
Meðlimir Nýrnafélagsins geta nú óskað eftir aðstoð næringarfræðings sem sérhæfir sig í næringarmeðferð nýrnasjúkdóma.

 

Bertha María Ársælsdóttir er næringarfræðingur Nýrnafélagsins.

Þú getur pantað tíma hjá henni á nyra.is https://nyra.is/um-felagid/radgjof-og-studningur/