Fréttabréf í mars 2023
Kæru félagar Þann 9. mars er Alþjóðlegi nýrnadagurinn.
Þann dag vekjum við athygli á þessum sjúkdómi sem svo mörg okkar eru að berjast við.
Þess vegna eru forvarnir stjórn Nýrnafélagsins efst í huga á þessum tíma. Sérstaklega þegar tölur berast ár eftir ár þess efnis að ómeðhöndlaður hár blóðþrýstingur sé helsta orsök nýrnabilunar á lokastigi á Íslandi.
Þetta er ekki flóknara en svo að ef að allir létu mæla blóðþrýstinginn reglulega þá væri hægt að koma í veg fyrir svo mörg tilfelli fólks með lokastigs nýrnabilun.
Þessi staðreynd er sorgleg að svona einföld aðgerð eins og það að mæla blóðþrýstinginn geti komið í veg fyrir alvarleg veikindi eins og nýrnabilun og auðvitað fleiri sjúkdóma.
Svo er það líka staðreynd sem margir vita ekki að það er engin lækning við lokastigs nýrnabilun. Fólk með lokastigs nýrnabilun fer í blóðskilun eða kviðskilun og er þar, ef að það finnst ekki nýragjafi.
Margir eiga því miður ekki kost á að fá nýtt nýra. Margar ástæður geta legið fyrir því eins og aðrir sjúkdómar eða mótefni í líkamanum sem valda því að illa gengur eða alls ekki að finna nýragjafa sem passar einstaklingnum.
En til allra hamingju þá gengur þetta upp hjá flestum að fá nýra og endurheimta sitt fyrra líf að mestu. En ígrætt nýra dugar nýraþega því miður ekki alla ævi. Margir þurfa að fá annað nýra grætt í sig og það á sérstaklega við um börn sem fá sitt fyrsta nýra ung að árum.
En horfur hafa breyst til batnaðar eftir að lögum var breytt um ætlað samþykki til líffæragjafar og verður aldrei nægjanlega þakkað þeim sem þar áttu hlut að máli.
Einnig eru sérfræðingar bæði íslenskir og erlengir að róa að því öllum árum að bæta hag nýrnasjúklinga á komandi árum.
Þangað til kæru félagar skulum við taka höndum saman og láta mæla blóðþrýstinginn og hvetja alla í kringum okkur til að gera slíkt hið sama. Bendum á þessar staðreyndir og stuðlum að lækkun á blóðþrýstingi.
Með kærri kveðju, Guðrún Barbara
ritstjóri fréttabréfsins |