Main menu:
SUMARFERÐIN 2008
Sumarferðin var farin sunnudaginn 15. júní. Lagt var af stað frá Hátúni 10b klukkan 11:00 og þar sem ferðaáætlun hljóðaði upp á að farið yrði á slóðir Einars Benediktssonar var fyrsta stopp við Höfða. Þar rifjaði Heiðrún fararstjóri upp nokkur atriði úr ævi Einars og sagðar voru sögur af honum. Lögðu ferðalangar þar ýmsar góðar sögur í púkkið.
Næsta stopp var í Krísuvík og gengu allir upp að hverasvæðinu og skoðuðu breytingar sem þar hafa orðið. Eftir stoppið í Krísuvík var dragspilið þanið og allir sungu upp úr söngbók sem dreift var í upphafi ferðar.
Þriðja stopp var við Krísuvíkurkirkju. Hún var opin og fóru allir inn og skoðuðu altaristöflu Sveins Björnssonar. Heiðrún steig í stólinn og fræddi hópinn um hvernig þau kynntust Einar Benediktsson og Hlín Johnson sem hlúði að skáldinu á ævikvöldinu. Aftur var tekið til við sönginn á leiðinni í Herdísarvík þar sem gengið var að húsinu þar sem þau bjuggu Einar og Hlín. Á pallinum sunnan við húsið voru kaffi og kleinur í boði og allir nutu útsýnisins í þessari einstöku vík.

Síðan lá leiðin í Strandakirkju þar sem staðarhaldari sagði frá sögu kirkjunnar og ýmsum munum sem þar eru. Einnig las Heiðrún nokkur erindi út kvæði Einars “Messan á Mosfelli”. Eftir dvölina í Strandakirkju var farið stystu leið í Skíðaskálann í Hveradölum þar sem snæddur var kvöldverður. Undir borðum fræddi Páll Ásmundsson fyrrv. yfirlæknir ferðalanga um upphafið á meðferð við lokastigsnýrnabilun. Á þessu ári eru 40 ár síðan slík meðferð hófst hér á landi. Í okkar fámenna landi er heimurinn lítill því annar af fyrstu einstaklingunum í blóðskilun á Íslandi var í hópi ferðalanga.
Þegar allir voru mettir var haldið til Reykjavíkur eftir að hafa sungið saman “Hvað er svo glatt...” Skemmtileg og fróðleg ferð var á enda.
Til baka í fréttir