Main menu:
S U M A R F E R Ð I N 2009
Var að þessu sinni farin í Borgarfjörð og Borgarnes sunnudaginn 14. júní.
Stór hópur eða 25 manns lögðu af stað frá Hátúni 10b upp úr hádegi. Sigurgeir Gíslason harmonikuleikari hélt uppi fjörinu í rútunni og allir sungu með upp úr söngheftinu sem dreift var. Á milli laga sagði Ingibjörg Hargrave leiðsögumaður frá því markverðasta sem fyrir augu bar.
Ekið var rakleiðis upp að Hvanneyri til þess að skoða Ullarselið og Búvélasafnið.
Á leiðinni þangað var áð í Þinghamri á Varmalandi og drukkið kaffi og meðlæti. Þar gerðist ýmislegt óvænt. Allt í einu birtist kornung stúlka, Birna Kristín Ásbjörnsdóttir, og spilaði fyrir okkur á píanó og leyndardómurinn um númeraðar söngbækur kom í ljós þegar vinningar höfðu fallið á nokkur númerin. Það voru bæði hollusta og nytjahlutir.
Frá Þinghamri var haldið í Reykholt þar sem hópurinn skoðaði sig um. Borgarnes var næst á dagskrá og við skoðum Skallagrímsgarð og Englendingavík áður en við snæddum súpu og brauð í Landnámssetrinu. Þangað kom Eygló L. Egilsdóttir og fræddi okkur á líflegan hátt um bernskuár sín í Borgarnesi. Það var þreyttur en ánægður hópur sem hélt heim á leið eftir að hafa sungið saman: Hvað er svo glatt...



