Main menu:
Um félagið
Lög Félags nýrnasjúkra
1. gr.
Nafn félagsins
Nafn félagsins er Félag nýrnasjúkra. Félagið er aðili að Öryrkjabandalagi Íslands.
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur félagsins
Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna þeirra sem veikjast af alvarlegum nýrnasjúkdómum og aðstandenda þeirra.
Félagið nær tilgangi sínum með því:
3. gr.
Félagar
Félagar geta allir orðið sem þess óska og hafa áhuga á að styrkja málstað nýrnasjúkra.
4. gr.
Aðalfundur
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfundur skal haldinn eigi síðar en í lok marsmánaðar ár hvert og til hans skal boða skriflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Dagskrá skal fylgja fundarboði. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Rétt til fundarsetu og kosninga hafa skuldlausir félagsmenn.
Fastir liðir á aðalfundi skulu vera:
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
Lögum þessum má breyta á aðalfundi. Til þess þarf tvo þriðju hluta greiddra atkvæða. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn félagsins fyrir lok janúarmánaðar og skulu þær fylgja aðalfundarboði. Aldrei má breyta lögum þessum þannig að raskað sé megintilgangi félagsins.
5. gr.
Stjórn félagsins
Stjórn félagsins skipa fimm menn og tveir til vara. Formaður skal kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Meðstjórnendur skulu kosnir 2 í einu til tveggja ára í senn og ganga árlega úr stjórninni á víxl. Varamenn skuli kosnir 1 í einu til tveggja ára í senn og ganga árlega úr varastjórn á víxl. Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund kýs stjórnin varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda úr sínum hópi. Boða skal varamenn á stjórnarfundi og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt.
Stjórnin er ályktunarhæf þegar minnst þrír eru mættir. Ef atkvæði falla jöfn ræður atkvæði formanns.
Formaður getur boðað stjórnarfund hvenær sem hann telur henta. Halda skal minnst fjóra stjórnarfundi á ári. Ritari færir fundargerð.
Prókúruhafi er stjórn félagsins eða sá stjórnarmaður sem hún veitir slíkt umboð.
Almennir félagsmenn geta farið fram á að haldinn verði félagsfundur telji þeir ástæðu til. Til þess þarf a.m.k. 25 skuldlausa félagsmenn.
6. gr.
Starfshópar
Stjórn félagsins getur myndað starfshópa til þess að sinna ákveðnum verkefnum félagsins. Einnig geta félagar sem hafa áhuga á sérstöku málefni félagsins myndað hóp til þess að vinna að því. Hver hópur skal vinna náið með stjórn félagsins.
7. gr.
Fulltrúar tilnefndir í stjórnir annarra félaga
Stjórn félagsins tilnefnir einn mann í stjórn Þjónustuseturs líknarfélaga til tveggja ára í senn.
Stjórn félagsins tilnefnir þrjá fulltrúa til setu í fulltrúaráði Öryrkjabandalags Íslands til tveggja ára í senn. Einn þeirra skal skipa sæti aðalmanns og einn sæti varamanns í aðalstjórn bandalagsins.
8. gr.
Slit félagsins
Til þess að leggja niður félagið þarf samþykki tveggja aðalfunda og skulu félagsslitin samþykkt með tveimur þriðju hlutum greiddra atkvæða á hvorum fundi. Geta skal sérstaklega áforms um félagsslit í fundarboði. Verði félaginu slitið skulu eignir þess ganga til skilunardeildar Landspítalans.
Samþykkt á aðalfundi 26. mars 2009.