Main menu:
FRÉTTATILKYNNING FRÁ FÉLAGI NÝRNASJÚKRA
Send fjölmiðlum í júní 2008
Samþykkt ríkisstjórnarinnar byggir á niðurstöðu vinnuhóps félags- og tryggingamálaráðherra sem sýnir að sumir einstaklingar sem vildu gefa líffæri hafa ekki treyst sér til þess vegna tímabundinnar fjarveru frá vinnu og tekjumissis.
Nýrnasjúkir eru stærsti hópur líffæraþega á Íslandi. Það var mikil bót fyrir nýrnasjúka þegar ígræðslur nýrna frá lifandi gjöfum hófust hér á landi. Skortur á nýrum til ígræðslu fer engu að síður vaxandi vegna fjölda þeirra sem veikjast af langvinnum nýrnasjúkdómum. Lög sem tryggja að líffæragjafar verði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni yrði því mikið framfaraspor.
Einnig vill stjórn félagsins beina því til ríksstjórnarinnar að lögum frá 1991 um brottnám líffæra úr látnum einstaklingum verði breytt þannig að gengið verði út frá ætluðu samþykki einstaklings til brottnáms líffæra hans til ígræðslu að honum látnum nema bann hans liggir fyrir.
Til baka í fréttir