Main menu:
Aðalfundur
Aðalfundur Félags nýrnasjúkra var haldinn 27. mars 2008 að Hátúni 10b. Þar eð enginn af starfandi stjórnarmönnum gaf kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu var kosin alveg ný stjórn. Stjórnina skipa: Jórunn Sörensen formaður, Jóhanna G. Möller ritari, Hallgrímur Viktorsson varaformaður, Heiðrún Bára Jóhannesdóttir gjaldkeri og Hólmar Þór Stefánsson meðstjórnandi.
Á fundinum voru Dagfríður Halldórsdóttir stofnandi og fyrsti formaður félagsins og Salóme Guðmundsdóttir sem m.a. sér um afgreiðslu á minningarkortum félagsins, gerðar að heiðursfélögum í þakklætisskyni fyrir langt og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Á fundinum var skýrði fráfarandi formaður Guðný Þóra Guðmundsdóttir frá því að verið er að koma á fót Nýrnaskóla í tengslum við nýrnadeild og skilunardeild sjúkrahússins. Síðan afhenti hún Hildi Einarsdóttur sérfræðingi í hjúkrun langveikra nýrnasjúklinga eina milljón króna í styrk til útgáfu bæklinga til notkunar við fræðsluna.
Til baka í fréttir